Leysti fíkniefnamál á frívakt
Lögreglumaður á Suðurnesjum sem var á frívakt fann mikla kannabislykt berast frá húsnæði í umdæminu þar sem viðkomandi átti leið hjá um helgina. Lögreglumenn fóru á vettvang og við húsleit, að fenginni heimild, fannst kannabisefni í kommóðuskúffu á heimilinu.
Í tilkynningu frá lögreglu segir að húsráðandi hafi viðurkennt að eiga efnið.