sudurnes.net
Létu hanna merki í tilefni 30 ára afmælis - Local Sudurnes
Reykjanesbær hefur látið hanna nýtt afmælismerki til að nota í kynningarefni og við fleiri tækifæri á 30 ára afmælisári bæjarfélagsins. Jón Ágúst Pálmason, grafískur hönnuður, hannaði merkið sem er með tilvísun í ýmsa þætti sem tengjast Reykjanesbæ eins og tónlistina, orkuvinnslu, íþróttir, menningu, flugið og fjölbreytt samfélag. Í umsögn segir: Reykjanesbær er kraftmikið fjölmenningarsamfélag sem er í stöðugum og örum vexti og alltaf á uppleið. Nágrennið við alþjóðaflugvöllinn hefur haft mikil og mótandi áhrif á menningu uppbyggingu á svæðinu. Þessi tillaga undirstrikar fjölbreytni og merkið er óður til þessa alls, myndlíking á Reykjanesbæ sem lokast með Keili og Reykjanesvita. Litirnir undirstrika svo fjölbreytileikann og fjölmenningarsamfélagið. Meira frá SuðurnesjumLeggja til að þróunarsvæði á Ásbrú verði boðið útMynd komin á 339 íbúða hverfi – Myndir!Nýtt deiliskipulag við Hólagötu – Sjáðu breytingarnar!Rafmagn tekið af við BásvegEldgos hafið – Virðist vera nærri HagafelliNesvegur í sundur og alveg ófær – Myndir!Gríðarlega erfiðar aðstæður við leit í Grindavík – MyndirHeimilt að auglýsa breytt deiliskipulag fyrir FitjarGestastofa Grænu smiðju ORF Líftækni formlega opnuðHluti Grindavíkur án rafmagns í nótt