sudurnes.net
Lentu á Akureyri og Egilsstöðum vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli - Local Sudurnes
Röskun varð á milllilandaflugi seint í gærkvöldi vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Vél frá Wow þurfti að lenda á Akureyri upp úr miðnætti og tvær vélar frá Icelandair lentu á Egilsstöðum á sviðuðum tíma. Vélarnar þrjár héldu svo áfram til Keflavíkur um tvöleytið í nótt þegar aðeins hafði dregið úr vindi. Á Vísi.is kemur fram að vélar sem höfðu náð að lenda í Keflavík um það bil sem veðurofsinn var að ná sér á strik, þurftu að bíða allt upp í tvær klukkustundir áður en þær komust að landgöngum og gátu hleypt farþegum út. Meira frá SuðurnesjumSafna undirskriftum vegna breytinga á leiðakerfi strætóFjöldi þeirra sem nýttu sér fjárhagsaðstoð stóð í stað þrátt fyrir mikla fjölgun íbúaAfgreiddi sig sjálfur en sleppti því að greiðaHS Orka getur ekki tekið þátt í stóriðjuverkefnumSyngja veiruna burt og styrkja Kvennaathvarfið í leiðinniSkemmtistaður gjörónýtur eftir eldsvoðaVilhjálmur vill einkavæða FríhöfninaArnar Helgi í fantaformi – Hefur bætt sjö Íslandsmet á undanförnum vikumSetti heimsmet á Landsbankamótinu í sundiBreytingar á leiðakerfi standa – “Verður nóg að gera í skutlinu”