Nýjast á Local Suðurnes

Leitað að konu sem leitaði að hundi – Þyrla Landhelgisgæslunnar ræst út

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar og björg­un­ar­sveit­ir voru kallaðar út rétt fyr­ir klukk­an sjö í kvöld til að leita að konu sem ekki hafði spurst til í 2-3 klukku­tíma. Leit­in er yf­ir­staðin en kon­an skilaði sér sjálf til byggða heil á húfi.

Mbl.is hefur eftir lög­regl­unni á Suður­nesj­um að konan hafi verið á gangi ásamt kær­asta sín­um frá því í morg­un í grennd við Voga á Vatns­leysu­strönd þar sem þau leituðu að hundi sem hef­ur verið týnd­ur í þrjá daga. Kon­an og maður­inn urðu viðskila en til­kynn­ing barst lög­reglu fyrst kl. 17:59 og var fljótt ákveðið að hefja leit þar sem hún hafði lengi verið á gangi og gæti hugs­an­lega verið orðin köld og þreytt, eða jafn­vel slasað sig.

Ekki náðist síma­sam­band við kon­una en hún kom sér sjálf niður í Voga þaðan sem hún gat látið vita af sér og leit var hætt. Hund­ur­inn er aft­ur á móti ennþá ófund­inn.