sudurnes.net
Leita manns sem er talinn hafa fallið ofan í sprungu - Local Sudurnes
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út, ásamt lögreglu og slökkviliði og eru nú að störfum í Grindavík eftir að tilkynning barst um að maður hefði fallið ofaní sprungu í bænum. Frá þessu er greint á vef RÚV, en þar kemur fram að frekari upplýsingar liggi ekki fyrir. Uppfært klukkan 12.00: Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum staðfestir við fréttastofu Vísis að leit sé í gangi. Maðurinn hafi verið að störfum við að fylla upp í sprungu en Úlfar veit þó ekki til þess að nokkur hafi séð manninn falla ofan í sprunguna. Grunur hafi samt vaknað um slysið og lögregla, slökkvilið og björgunarseitir kallaðar út á ellefta tímanum. Úlfar segir ekki tímabært að veita frekari upplýsingar að svo stöddu Meira frá SuðurnesjumKona handtekin grunuð um íkveikju í fjölbýlishúsiFlestir starfsmenn USi hafa undirgengist heilsufarsskoðunKalla þurfti á lögreglu til að aðstoða við rýminguBláa lónið skellir í lásHætta matarúthlutunum – Skjólstæðingum bent á félagsþjónustu sveitarfélagannaHandtekinn vopnaður öxi í miðbæ ReykjanesbæjarByrjað á framkvæmdum við heitavatnslögnUm 10 þúsund manns í grennd við gosstöðvarnarBYGG segir upp 40 manns vegna ástandsins á SuðurnesjumLögreglan á Suðurnesjum hefur lagt hald á kókaín fyrir hálfan milljarð króna