sudurnes.net
Leikskólinn Holt fyrsti eTwinning leikskóli landsins - Local Sudurnes
Leikskólinn Holt hlaut á dögunum titilinn eTwinning skóli, fyrstur leikskóla á Íslandi. Aðrir skóla sem hlutu þennan titil eru Stóru-Vogaskóli, Flataskóli og Grunnskóli Bolungavíkur. Viðurkenningin byggist á öruggri netnotkun og breiðri þátttöku í eTwinning og alþjóðasamstarfi. Viðurkenningin kemur frá landsskrifstofa eTwinning verkefnisins. Tekið er fram að hin breiða þátttaka vísi til þess að þátttaka byggist ekki á framtaki einstakra kennara heldur sé markviss, njóti stuðning skólastjórnenda og nái til fjölda nemenda. Að gerast eTwinning skóli er liður í skólaþróun, segir í umsögn Landsskrifstofu. Fyrir utan að eflast enn frekar í notkun upplýsingatækni og alþjóðasamstarfi hafa eTwinning skólar tækifæri til styrkja starfsþróun kennara og skólastjórnenda auk alþjóðatengsla skólans: skólinn verður sýnilegri í skólasamfélagi eTwinning fær tækifæri til að mynda tengsl við aðra eTwinning skóla í Evrópu – verður hluti af evrópsku neti eTwinning skóla aukin tækifæri til starfsþróunar í boði fyrir kennara og skólastjórnendur skólans Viðurkenningin er til tveggja ára í senn. Næst verður opnað fyrir umsóknir í byrjun árs 2019. Meira frá SuðurnesjumSbarro opnar á KEFLeikskólinn Holt tilnefndur til Evrópuverðlauna fyrir lestrarverkefniReykjanesbær samþykkir fjárveitingu vegna hringtorga á ReykjanesbrautHafa lækkað álagningarhlutfall fasteignaskatts um 34%Fjölsmiðjan stækkar Kompuna – Bjóða upp á meira úrval af stærri hlutumLeikskólinn Holt fékk gæðaviðurkenningu Erasmus+Sumarhátíð á leikskólanum Holti [...]