sudurnes.net
Leigubifreiðastjórar á bifreiðastæði með allt á tæru - Local Sudurnes
Lögreglumenn á Suðurnesjum könnuðu yfir páskahátíðina ökuréttindi leigubifreiðastjóra á bifreiðastæðinu við komusal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Er skemmst frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu og höfðu tilskilin ökuréttindi og akstursheimildir í lagi. Kváðust þeir ánægðir með þetta framtak lögreglu. Sama máli gegndi um þá sem flytja fólk til og frá flugstöðinni í atvinnuskyni. Þegar þeirra réttindi voru könnuð reyndist allt í besta lagi. Við eftirlit með umferð um flughlað og umhverfis flugstöðina var akstur ökumanna til fyrirmyndar og engin tilefni til afskipta. Loks var lögregla með eftirlit með skemmtistöðum í umdæminu um páskahátíðina og þar fór allt vel fram. Meira frá SuðurnesjumLögreglan stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í heimahúsiFimm ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur um páskaFjöldi umferðaróhappa á Suðurnesjum – Dópaður festist á hringtorgiHandtekinn eftir að hafa gjöreyðilagt bifreið – Nokkrir árekstrar um helginaErlent flutningaskip hársbreidd frá því að steyta á EldeyjardrangiFélag í jafnri eigu athafnamanns og framkvæmdastjóra Kadeco sýslar með eignir á ÁsbrúSólborg með nýtt lag – Davíð og Hildur Selma með danssporin á tæru í flottu myndbandi!Valdimar settur í sprenghlægilegar aðstæður – Myndir!Mikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkHafa yfirfarið ríflega 8000 jarðskjálfta á Reykjanesi