sudurnes.net
Leiðindaveður næstu daga - Veðurstofan bendir fólki á að fylgjast með veðurspám - Local Sudurnes
Veðurstofan hefur sent út viðvörun þar sem gert er ráð fyrir suðaustanstormi sunnan- og vestanlands í dag. Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að veðrið muni ganga í suðaustan 15-23 m/s með rigningu með morgninum, fyrst suðvestantil en hægari og úrkomulítið NA-lands. Dregur heldur úr vindi í kvöld. Hiti 0 til 8 stig. Suðaustan- og austan 10-18 m/s A-til í fyrramálið og talsverð rigning sunnan- og suðaustanlands. Í athugasemdum veðurfræðings er varað við lægðargangi í kringum landið og fólki bent á að fylgjast með veðurspám. “Næstu daga er talsverður lægðagangur í kringum landið með hvössum vindi, talsverðri úrkomu og hitasveiflum. Við bendum fólki því á að fylgjast vel með veðurspám.” Meira frá SuðurnesjumFólk hvatt til að sýna aðgát og ganga frá lausum munum til að forðast tjónStormviðvörun – Búast má við erfiðum akstursskilyrðum í lélegu skyggni og hvössum vindiGult í kortum – Trampólín að norðan gætu endað hér!Appelsínugul viðvörun fyrir morgundaginn – Hvasst og hviðótt á ReykjanesbrautBúist við stormi og éljum í kvöld – Hlýnar í kjölfariðGular viðvaranir taka gildi í nóttVeðurstofan varar við stormi – Talsverð úrkoma og hlýnandi veðurAppelsínugult í kortunum og ekkert ferðaveðurVeðurstofan varar við stormi – Vindur verður allt að 23 m/s um hádegiSvona verður veðrið yfir [...]