sudurnes.net
Leggur til að sveitarfélögin á Suðurnesjum skipuleggi svæði fyrir Samviskugarða - Local Sudurnes
Reykjanesbær hefur til skoðunnar að opna svokallaða Samviskugarða, sem ganga út á það að jafna kolefnisspor íbúa sveitarfélagsins, en vel var tekið í tillögu þess efnis á fundi Umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Ásmundur Friðriksson lagði fram tillöguna um að sveitarfélagið, og jafnvel öll sveitarfélögin á Suðurnesjum skipuleggi svæði fyrir samviskubit okkar, svokallaða Samviskugarða, en þar gætu þeir íbúar sem vildu jafna kolefnissporin sín gróðursett tré á skipulögðum svæðum innan sveitarfélaganna á opnum svæðum og í nánasta umhverfi þeirra. Margir gætu þá tekið beinan þátt í að fegra umhverfið og jafna kolefnissporið sem við skiljum eftir okkur, segir í fundargerð Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. Ráðið fagnar góðri hugmynd og er hún í samræmi við hugmyndir Umhverfissviðs. Umhverfissvið mun vinna málið áfram. Meira frá SuðurnesjumÍtrekuð skemmdarverk á leikskóla – “Berum öll ábyrgð á að ganga vel um”Vorhreinsun Reykjanesbæjar hófst í dagÍbúar Þórkötlustaðahverfis fá að sækja nauðsynjarHafa áhyggjur af aðgengi íbúa að heilsugæslulæknumFá þrjár klukkustundir í Grindavík – Svona verður fyrirkomulagiðIsavia styður við barna- og unglingastarf í ReykjanesbæÞremur sýningum lýkur á sunnudag – Ókeypis aðgangurJólaljós tendruð um öll Suðurnes um helginaGóður granni er áhrifaríkasta afbrotavörnin – Svona er ferlið við að setja upp nágrannvörsluÓkeypis ráðgjöf um markaðssetningu handverks