sudurnes.net
Leggja til hækkun á sérstökum húsnæðisbótum - Local Sudurnes
Sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjanesbæjar hefur lagt til að sérstakar húsnæðisbætur sveitarfélagsins taki mið af hækkun almennra húsnæðisbóta frá 1. janúar sl. en þá hækkuðu almennar húsnæðisbætur um 13,8%. Sérstakar húsnæðisbætur hækkuðu til samræmis við hækkun almennra húsnæðisbóta 2022 um 10% til að tryggja að hækkunin skili sér til húsnæðisleigjenda, segir í fundargerð Velferðarráðs. Viðmiðunarmörk sérstaks húsnæðisstuðnings yrðu þá 751 kr. á hverjar 1000 kr. í greidda húsaleigu frá 1. janúar 2023 og hámark almenns og sérstaks húsnæðisstuðnings samanlagt yrði 75.108 kr. Velferðarráð mælir með að tillagan verði samþykkt og vísar málinu til bæjarráðs. Lögð er áhersla á mikilvægi hækkunar sérstaks húsnæðisstuðnings til að draga úr áhrifum verðbólgu á lífskjör viðkvæmustu hópa samfélagsins, hún er til þess fallin að styðja við tekjulægstu hópa leigjenda. Meira frá SuðurnesjumVinna að umferðaröryggisáætlunVoice stjarna heimsótti grunnskólabörnGera ráð fyrir 934 milljóna afgangi hjá Reykjanesbæ – Áhersla lögð á að efla þjónustuBreyta skemmtistað í eitt stórt draugahús fyrir Halloween – Myndband!Sundmiðstöðin opin lengur í sumarVogar efla menningarstarfsemi – Grindavík fyrirmyndinFyrstu tölur úr prófkjöri Sjálfstæðisflokks – Páll Magnússon í 1. sætiFramlög úr Jöfnunarsjóði til reksturs grunnskóla – Rúmlega milljarður til SuðurnesjaFrestun fasteignagjalda verður útvíkkuðSuðurnesjahönnuðir selja gjafavörur í Svarta Pakkhúsinu