sudurnes.net
Lava hlaut virt alþjóðleg verðlaun - Local Sudurnes
Bílaleigan Lava Car Rental var í dag valin bílaleiga ársins “Iceland’s leading Car Rental Company” af World Travel Awards fyrir árið 2023. Davíð Páll Viðarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins var að vonum ánægður með árangurinn og stoltur af góðu starfsfolki, sem hann segir vera lykillinn að velgengni fyrirtækisins. “Ég er gríðarlega stoltur og þakklátur en jafnframt meðvitaður um að vegferðin heldur áfram, verðlaun og viðurkenningar á leiðinni eru fyrst og fremst staðfesting og vissa um að við erum á réttri leið. Lykillinn er að byggja upp góðan starfsanda og er ég óendanlega stoltur af fólkinu mínu öllu hjá Lava Car Rental sem var rétt i þessu að vinna titlinn Bílaleiga ársins “Iceland’s leading Car Rental Company” af World Travel Awards fyrir árið 2023.” Sagði Davíð Páll í færslu á Facebook. Meira frá SuðurnesjumLava og Courtyard tilnefnd til alþjóðlegra verðlaunaHótel Keflavík og Bláa lónið tilnefnd til virtra verðlaunaCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðBláa lónið besti dval­arstaður­inn – Hótel Keflavík tilnefnt sem besta hótel landsinsCourtyard by Marriott tilnefnt til verðlaunaÖspin fékk veglegar gjafir frá Blue car rentalBlue keypti bifreiðar fyrir 5,1 milljarðFjölskylda með langveikt barn fékk bláa DusterinnMilljarður til hluthafa Blue Car RentalSuðurnesjahótelin skora hátt á bókunarvefsíðum – Dýrasta nóttin kostar milljón