sudurnes.net
Launakostnaður vegna bæjarstjóra og bæjarstjórnar um 60 milljónir króna á ári - Local Sudurnes
Launakostnaður vegna bæjarstjóra og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar nam 58 milljónum króna á síðasta ári, þar af námu laun bæjarstjórans, Kjartans Más Kjartanssonar tæplega 20 milljónum króna. Kostnaðurinn hækkaði um 0,8% á milli ára í Reykjanesbæ, á meðan hækkun í flestum öðrum sveitarfélögum var um og yfir 10%. Kjartan Már er því 6. launahæsti bæjarstjóri landsins, með tæplega 1,6 milljón króna á mánuði, samkvæmt úttekt DV á launakjörum kjörinna fulltrúa í nokkrum sveitarfélögum, launahæstur er bæjarstjórinn í Kópavogi með 2,3 milljónir króna á mánuði. Til samnburðar nam launakostnaður bæjarstjóra og kjörinna fulltrúa í Kópavogi 95 milljónum króna í fyrra og Garðabær og Hafnarfjörður, voru með um og yfir 70 milljónir í launakostnað á síðasta ári. Meira frá SuðurnesjumLaunakostnaður Keflavíkur um 130 milljónir króna – Mestur hagnaður hjá NjarðvíkMest aukning í gistingum ferðamanna á Suðurnesjum – Dýrasta gistingin á milljónSorpeyðingarstöð tapaði rúmlega milljón á síðasta áriEng­in viðskipta­leg rök í að lækka verð í Bláa LóniðSláandi og óásættanlegar niðurstöður við umferðareftirlitVelta á fasteignamarkaði þrefaldast á milli ára – 118 samningum þinglýst í júníKadeco eina ríkisfyrirtækið sem lækkaði stjórnanda í launumBesta rekstrarár í sögu HS OrkuBitcoin-risi á Reykjanesi veltir 2,5 milljörðum króna – Hagnaðurinn minnkar hrattRúmlega 13 milljarða tap hjá Isavia