sudurnes.net
Launakostnaður gerir Isavia erfitt fyrir - Local Sudurnes
Þrátt fyrir að farþegum sem leggja leið sína í gegnum Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafi fjölgað hratt aftur eftir Covid-19 er enn talsverð óvissa framundan, samkvæmt því sem Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, segir í tilkynningu með árshlutauppgjöri fyrirtækisins. þar kemur fram að launakostnaður hér á landi gerir fyrirtækinu erfitt fyrir við að ná þeirri arðsemi sem nauðsynleg er. „Kostnaðarhækkanir síðustu ára og þá sér í lagi launakostnaður á Íslandi hafa gert okkur erfitt fyrir að ná þeirri arðsemi sem nauðsynleg er til að standa undir þeirri miklu uppbyggingu sem framundan er og eins og staðan er í dag þá er mikil óvissa framundan. Við verðum áfram í mikilli samkeppni við erlenda flugvelli og við þurfum því að vera einstaklega snjöll til að mæta þessari óvissu. Flugtengingar eru einn af þeim lykilþáttum sem styðja við hagvöxt á Íslandi“. Meira frá SuðurnesjumHælisleitendur dæmdir til fangelsisvistarThorsil gerir 5 milljarða króna alhliða samning um framkvæmdir við kísilverAlþjóðlegt pílukastmót í Reykjanesbæ – Fjöldi erlendra keppenda taka þáttTugmilljónir í reiðufé haldlagðar í aðgerðum lögregluAukið álag á starfsfólk BS – Óvenju mikið um sjúkrabíla í SandgerðiBjörgvin nýr þjálfari Þróttar VogumTveggja ára skilorð fyrir fölsuð strætókortHælisleitendur teknir við vinnu án atvinnuleyfis – Gætu misst húsnæði og framfærsluVilja setja upp [...]