sudurnes.net
Lánuðu fjórgasmæla og fengu vandaða tölvuskjái að gjöf - Local Sudurnes
Fyrr á þessu ári fékk vettvangsstjórnin í Grindavík tvo vandaða tölvuskjái að gjöf frá HS Orku í þakklætisskyni fyrir lán á fjórgasmælum, sem fyrirtækið átti ekki en þurfti snögglega á að halda skömmu fyrir jól í fyrra. Þá kom óvænt upp brennisteinsgasmengun við uppsetningu í nýja orkuverinu á Reykjanesi og var brýnt að bregðast hratt og vel við til að tryggja öryggi starfsmanna sem best. Við eftirgrennslan kom í ljós að Björgunarsveitin Þorbjörn átti slíka fjórgasmæla og var auðsótt mál að fá þá lánaða vegna atviksins. Viðar Arason, öryggisfulltrúi HS Orku, heimsótti vettvangsstjórnina í vetur og afhenti skjáina þeim Boga Adolfssyni, formanni sveitarinnar, og Steinari Þór Kristinssyni, aðgerðastjórnanda, segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. HS Orka hefur nú fjárfest í eigin fjórgasmælum, sem eru þráðlausir og handhægir mælar, og eru þeir ávallt til taks og notaðir þegar þörf krefur. Hafa þeir einmitt verið nýttir í yfirstandandi eldsumbrotum til að fylgjast með losun gastegunda í andrúmsloftinu í Svartsengi til viðbótar mælistöð sem þar er staðsett. Atvikið fyrir jólin í fyrra sýndi hins vegar glöggt gagnsemi þess að eiga góða granna að þegar óvæntar aðstæður koma upp. Meira frá SuðurnesjumÓska skýringa frá sorphirðuverktakaSlasaðir sóttir við gosstöðvarnar – Loka svæðinu ef þörf krefurFramlengja niðurfellingu [...]