Nýjast á Local Suðurnes

Langmest aukning gistinátta á hótelum á Suðurnesjum

Hótel Berg við smábátahöfnina

Gistinætur á hótelum á Suðurnesjum voru 28.600 í ágúst, sem er 33% aukning frá fyrra ári, en á sama tíma jókst framboð herbergja á Suðurnesjum um 64%. Einnig fjölgaði gistinóttum á Vesturlandi og Vestfjörðum (4%) og á Suðurlandi (3%), en gistinóttum á hótelum fækkaði frá sama mánuði í fyrra á Norðurlandi (11%) og á Austurlandi (3%). Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofunni.

Gistinætur á hótelum landsins í ágúst voru 457.600 sem er 2% aukning miðað við ágúst 2016. Um 53% allra gistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 243.600, sem er 2% aukning miðað við ágúst 2016.

Á tólf mánaða tímabili frá september 2016 til ágúst 2017 var heildarfjöldi gistinátta á hótelum 4.197.000 sem er 21% aukning miðað við sama tímabil árið áður.