sudurnes.net
Landsnet kærir úrskurði Héraðsdóms til Hæstaréttar - Local Sudurnes
Landsnet hefur kært til Hæstaréttar úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í liðinni viku þar sem rétturinn hafnaði aðfararbeiðnum Landsnets um eignarnám á landhluta úr fjórum jörðum á Reykjanesi vegna lagningar Suðurnesjalínu 2. Héraðsdómur taldi varhugavert, vegna óafturkræfra umhverfisáhrifa, að fallast á kröfu Landsnets áður en Hæstiréttur hefði leyst úr ágreiningi um lögmæti eignarnámsheimildar vegna umræddra jarða sem og ágreiningi um lögmæti leyfisveitinga Orkustofnunar og sveitarfélagsins Voga vegna línubyggingarinnar. Ákvörðun um eignarnám vegna jarðanna fjögurra lá fyrir í febrúar 2014 og héraðsdómur staðfesti ákvörðun um eignarnám í júní 2015. Sá úrskurður var kærður til Hæstaréttar og hefst málflutningur í næsta mánuði. Þá hefur framkvæmdaleyfi vegna Suðurnesjalínu 2 legið fyrir um nokkurt skeið frá sveitarfélögunum Grindavík, Hafnafjarðarbæ, Reykjanesbæ og Vogum, ásamt leyfi Orkustofnunar fyrir byggingu og rekstri línunnar og áætlaði Landsnet að hefja framkvæmdir á næstu vikum. Búið er að semja við Íslenska aðalverktaka um undirbúningsvinnu, þeim framkvæmdum á að ljúka í haust og ráðgert að reisa línuna sumarið 2017. Brýnt að styrkja flutningskerfi raforku á Reykjanesi Suðurnesjalína 2 er hluti af verkefninu Suðvesturlínur. Umhverfismat vegna framkvæmdanna var samþykkt með skilyrðum árið 2009. Í ársbyrjun 2011 var ákveðið að byrja á styrkingu flutningskerfisins á Reykjanesi þar sem Suðurnesjalína 1 er fulllestuð. Jafnframt er öryggi [...]