Nýjast á Local Suðurnes

Kynningafundur vegna starfleyfis Thorsils ehf. í Helguvík

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Thorsil ehf. til að að framleiða í fjórum ljósbogaofnum allt að 110.000 tonnum á ári af hrákísli (>98% Si), allt að 55.000 tonnum af kísildufi og 9.000 tonnum af kísilgjalli.

Stofnunin heldur kynningafund vegna starfsleyfisumsóknarinnar í Bíósal Duus safnahúsa miðvikudaginn 24. júní nk. Fundurinn hefst kl. 17:00.

Framkvæmdin fór í mat á umhverfisáhrifum og álit Skipulagsstofnunar lá fyrir 1. apríl 2015. Skilyrðin í starfsleyfistillögunni miðast m.a. við matsskýrslu og umfjöllun Skipulagsstofnunar um framkvæmdina, starfsleyfisskilyrði sambærilegra fyrirtækja sem hafa starfsleyfi hjá Umhverfisstofnun, sem og viðmið um bestu fáanlegu tækni.

Starfsleyfistillagan er auglýst á tímabilinu 28. maí til 23. júlí 2015. Á heimasíðu Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu, drög að vöktunaráætlun og umsóknargögnin. Einnig er að finna matsskýrslu fyrirtækisins sem skilað var til Skipulagsstofnunar og álit hennar. Að auki er að finna gögn um dreifingu loftmengunar en Umhverfisstofnun fór fram á það við Thorsil ehf að fyrirtækið skilaði inn aukagögnum sem sýna frekari dreifingu loftmengunar í Reykjanesbæ.

Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 23. júlí 2015.