Kynna starfsemi HKR með Handboltadeginum
HKR, Handknattleiksfélag Suðurnesja kynnir sig og íþróttina fyrir Suðurnesjamönnum með EM handboltadeginum þann 18. janúar næstkomandi.
Kynningin verður haldin í íþróttahúsi Heiðarskóla og hefst klukkan 15. Á meðal þess sem verður boðið upp á eru skemmtilegar æfingar þar sem krakkar á öllum aldri geta prófað sig áfram í þessari vinsælu íþróttagrein. Þá verða pylsur á boðstólnum fyrir alla, segir í tilkynningu.
Áhugasamir eru hvattir til að kíka við og kynna sér félagið og fólkið sem stendur á bakvið það.