Nýjast á Local Suðurnes

Kvikmyndin “Ég man þig” tekin upp að hluta í Bakka

Vegfarendur í Grindavík hafa eflaust veitt því athygli að töluvert líf hefur verið í Bakka við Víkurbraut 4 undanfarna daga. Húsið er í eigu Minja- og sögufélags Grindavíkur en til stendur að gera húsið upp og koma aftur til fyrri vegs og virðingar en það er elsta uppistandandi verbúð á Suðurnesjum.

Til allrar hamingju fyrir framleiðendur myndarinnar „Ég man þig“ eru þær framkvæmdir þó enn á undirbúningsstigi en að þeirra sögn er húsið eins og klippt útúr þeirra draumahugmyndum um tökustað fyrir myndina, segir á heimasíðu Grindavíkurbæjar.

Þessa dagana er unnið að því að tæma húsið en síðan hefst vinna við að byggja sviðsmynd og einnig á að tyrfa í kringum húsið og er torfið komið á staðinn. Tökur munu standa yfir í nokkrar vikur í nóvember og svo væntanlega aftur í vor.

Nánar um kvikmyndina hér.