sudurnes.net
Kvartað yfir slæmri lýsingu og yfirfullum sorptunnum við FLE - Local Sudurnes
Not­end­ur Facebook-síðunnar Bakland ferðaþjónustunnar hafa að undanförnu lýst óánægju sinni með aðstæður á Keflavíkurflugvelli, sem eru sagðar allt annað en boðlegar fólki sem er að koma til landsins. Sérstaklega hefur verið kvartað undan slæmri lýsingu fyrir utan flugstöðina og yfirfullum sorptunnum og hefur fólk birt myndir og myndbönd máli sínu til stuðnings. Einn notenda síðunnar segir þetta skammarlegt og að ekki hafi verið kveikt ljós á gönguleiðum umhverfis flugstöðina í einhverjar vikur. “Mér finnst þetta vera skammarlegt, það eru ekki búin að vera kveikt ljós í fleiri daga eða vikur, sama ruslið svo dögum skiptir og ekkert gert.” Umferð um Keflavíkurflugvöll hefur verið gríðarlega mikil að undanförnu að sögn Guðna Sigurðssonar upplýsingafulltrúa Isavia, en hann segir að brýnt hafi verið fyr­ir þeim, sem sjá um sorp­hirslu að fylgj­ast sér­stak­lega með um­rædd­um tunn­um. „Und­an­farna daga hef­ur um­ferð um Kefla­vík­ur­flug­völl verið gríðarlega mik­il og stærstu dag­ar hafa jafn­ast á við stærstu daga árs­ins hvað farþega­fjölda varðar. Auk þess hef­ur veður ekki verið gott og mikið myrk­ur. Við þess­ar aðstæður safn­ast far­ang­ur­s­kerr­ur hratt upp og það á einnig við um sorp í sorptunn­um. Við tök­um þess­ar ábend­ing­ar hins veg­ar til okk­ar og úr­bæt­ur standa yfir,“ seg­ir Guðni. Þá hefur mbl.is eftir Guðna að unnið [...]