sudurnes.net
Krókur þátttakandi í vináttuverkefni Barnaheilla - Blær bangsi kom siglandi í leikskólann - Local Sudurnes
Leikskólinn Krókur í Grindavík er nú þátttakandi í vináttuverkefni Barnaheilla, Fri for mobberi. Vináttuverkefnið er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla. Það byggir á nýjustu rannsóknum á einelti og á ákveðinni hugmyndafræði og gildum. Gildin eru samofin öllu skólastarfinu og er verkefnið unnið bæði í leikskólanum og heima. Nokkrir starfsmenn leikskólans hafa farið á námskeið til að fá leyfi til að nota námsefnið sem fylgir verkefninu og var verkefnið kynnt á foreldrafundi leikskólans í september. Mánudaginn 24. október kom Blær bangsi í leikskólann. Blær er táknmynd vináttunnar í verkefninu. Blær kom siglandi með bátnum Áskeli GK 749 til Grindavíkur. Verkefninu fylgir taska með námsefni sem hægt er að nota á ýmsan hátt og er verkefnið hugsað sem sameiginlegt verkefni skólans og heimilanna. Gildi verkefnisins eru: 1. Umburðarlyndi Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við alla aðra af virðingu. 2. Virðing Að viðurkenna og taka tillit til allra barnanna í hópnum, að vera öllum góður félagi og að virða mismunandi hátterni annarra. 3. Umhyggja Að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. Að hafa skilning á stöðu annarra. 4. Hugrekki Að þora að láta til sín heyra og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur [...]