Nýjast á Local Suðurnes

Krókur þátttakandi í vináttuverkefni Barnaheilla – Blær bangsi kom siglandi í leikskólann

Leikskólinn Krókur í Grindavík er nú þátttakandi í vináttuverkefni Barnaheilla, Fri for mobberi. Vináttuverkefnið er forvarnarverkefni gegn einelti fyrir leikskóla. Það byggir á nýjustu rannsóknum á einelti og á ákveðinni hugmyndafræði og gildum. Gildin eru samofin öllu skólastarfinu og er verkefnið unnið bæði í leikskólanum og heima.

Nokkrir starfsmenn leikskólans hafa farið á námskeið til að fá leyfi til að nota námsefnið sem fylgir verkefninu og var verkefnið kynnt á foreldrafundi leikskólans í september. Mánudaginn 24. október kom Blær bangsi í leikskólann. Blær er táknmynd vináttunnar í verkefninu. Blær kom siglandi með bátnum Áskeli GK 749 til Grindavíkur.

Verkefninu fylgir taska með námsefni sem hægt er að nota á ýmsan hátt og er verkefnið hugsað sem sameiginlegt verkefni skólans og heimilanna.

Gildi verkefnisins eru:

1. Umburðarlyndi
Að viðurkenna og skilja mikilvægi og gildi fjölbreytileikans og að koma fram við alla aðra af virðingu.

2. Virðing
Að viðurkenna og taka tillit til allra barnanna í hópnum, að vera öllum góður félagi og að virða mismunandi hátterni annarra.

3. Umhyggja
Að sýna öllum börnum áhuga, samkennd, samlíðan og hjálpsemi. Að hafa skilning á stöðu annarra.

4. Hugrekki
Að þora að láta til sín heyra og geta sett sér mörk. Að vera hugrakkur og góður félagi sem bregst við óréttlæti.

Hægt er að lesa meira um verkefnið á heimasíðu Barnaheilla

krokur2