sudurnes.net
Kristinn nýr mannauðsstjóri Reykjanesbæjar - Local Sudurnes
Kristinn Óskarsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri Reykjanesbæjar eftir ráðningarferli í samvinnu við Hagvang. Alls sóttu 10 mjög hæfir einstaklingar um stöðuna. Kristinn er menntaður íþróttakennari og starfaði í Heiðarskóla í Reykjanesbæ um 9 ára skeið, frá 1999-2008. Árið 2007 lauk Kristinn diplómanámi í mannauðsstjórnun fá Endurmenntunarstofnun HÍ og árið 2009 meistaraprófi í viðskiptastjórnun (MBA) frá Háskóla Íslands. Sama ár hóf hann störf hjá Securitas hf. þar sem hann starfaði m.a. sem framkvæmdastjóri starfsmannasviðs og frá 2014 sem framkvæmdastjóri Securitas Reykjanesi. Kristinn hefur lokið námi sem stjórnendamarkþjálfi (Executive Coaching) og er einn reyndasti körfuboltadómari landsins. Meira frá SuðurnesjumGunnar Víðir tekur við markaðsmálunum hjá ReykjanesbæÁrni Gísli ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslusviðsSamkaup fá reynslubolta frá Arion bankaRekstur Kölku gengur vel – Tekur styrkveitingar til skoðunar á ný eftir hléJón Ingi nýr innkaupastjóri Reykjanesbæjar – 24 sóttu um starfiðGunnar Axel ráðinn bæjarstjóri35% aukning á tjaldsvæðinu í Grindavík í sumarFjölmenn útskrift Keilis – Yfir 1500 nemendur hafa útskrifast úr HáskólabrúIngibjörg Salóme skipuð í stöðu framkvæmdastjóra hjúkrunar við HSSJón Haukur ráðinn aðstoðarskólastjóri Stapaskóla