Kristín Júlíana er fundin
Kristí Júlíana Baldursdóttir, þrettán ára gömul stúlka sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir á mánudag er komin fram. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu amaði ekkert að henni og hún er komin í hendurnar á réttum aðilum.
Lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir Kristínu Júlíönu Baldursdóttur seint á mánudagskvöldið en þá hafði hún ekki skilað sér heim að loknum grunnskóla í Sandgerði.