Nýjast á Local Suðurnes

Köstuðu flugeldum inn um bréfalúgu – Snarræði íbúa kom í veg fyrir slys

Snarræði íbúa í húsi einu í Sandgerðishverfi Suðurnesjabæjar kom í veg fyrir að tjón eða slys á fólki yrði eftir að flugeldum var kastað inn um bréfalúgu á húsnæði í hverfinu. Þetta kemur fram í umræðum um málið á Facebook-síðunni Frétta- og upplýsingasíða fyrir Sandgerðinga.

Í umræðunum kemur fram að þetta sé ekki eina tilfellið hvar óvarlega er farið með flugelda í sveitarfélaginu, en myndir eru birtar af skemmdum póstkössum og skemmdum eftir að flugeldunum var kastað inn um áðurnefnda bréfalúgu. Þá kemur fram í umræðunum að málið hafi verið eða verði tilkynnt til lögreglu og barnaverndaryfirvalda þar sem meintir gerendur séu á unglingsaldri.