sudurnes.net
Kolbrún Júlía á meðal þeirra bestu þrátt fyrir erfið meiðsli - Local Sudurnes
Kolbrún Júlía Guðfinnsdóttir Newman varð þriðja í vali á bestu fimleikakonu ársins af Fimleikasambandi Íslands. Árangurinn verður að teljast einstaklega góður því Kolbrún Júlía hefur verið að vinna sig upp úr afar erfiðum meiðslum. Í umsögn segir meðal annars að Kolbrún Júlía, sem keppir með kvennaliði Gerplu, hafi staðið sig vel á GK- og bikarmóti þar sem hún keppti með öll þau erfiðustu stökk sem framkvæmd eru á trampólíni hjá konum i hópfimeikum. Þá segir jafnframt að á dýnu hafi Kolbrún Júlía keppt með erfiða framumferð, eða kraftstökk heil skrúfa tengt í tvöfaldaskrúfu. Kolbrún Júlía keppti með mörg ný stökk á þessu tímabili, þrátt fyrir að hafa verið að vinna sig úr mjög erfiðum meiðslum. Meira frá SuðurnesjumHeiðrún og Bjarni íþróttafólk UMFN 2018Elvar Már í eldlínunni í kvöld – Sjáðu leikinn í beinni!Stórt Keflavíkurtap í Garðabæ – Dupree vísað úr húsiKolbrún Júlía Íslandsmeistari í hópfimleikumReglur koma í veg fyrir að hægt sé að styrkja afreksíþróttafólk í undirbúningi fyrir ÓLKolbrún Júlía keppir á EM í hópfimleikum í dag – Sjáðu keppnina í beinni!Glæsilegar stoðsendingar og körfur Elvars Más – Myndband!Agnar Mar Gunnarsson tekur við kvennaliði NjarðvíkurKeflavík fyrsta fimleikafélagið sem býður upp á Power Tumbling – Myndband!Arnór Ingvi og Ingvar fara á EM [...]