Nýjast á Local Suðurnes

Keilir kominn með leyfi til reksturs framhaldsskóla

Keilir hefur fengið tilskilin leyfi frá menntamálaráðuneytinu til reksturs framhaldsskóla og er vinna hafin við að koma skólanum á fót en hann mun bera nafnið Menntaskólinn á Ásbrú (MÁS). Hjördís Alda Hreiðarsdóttir og Þorsteinn Surmeli, íslenskukennarar við Háskólabrú Keilis, munu hafa umsjón með námsbrautinni sem þau segja að muni leggja áherslu á nýjustu aðferðir í námi og kennslu og undirbúa nemendur fyrir störf framtíðarinnar.

MÁS verður að mörgu leyti frábrugðinn öðrum framhaldsskólum. Skólinn mun leggja áherslu á vendinám (e. flipped classroom) sem hefur verið stór hluti af starfi Keilis á undanförnum árum. Í skólanum verða hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur munu nemendur stunda sína vinnu í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim.

Skóladagurinn í MÁS mun ekki hefjast fyrr en klukkan 9 á morgnana enda eru áhrif myrkurs á sálarlíf Íslendinga vel þekkt. Dagleg hreyfing verður hluti af skólastarfinu enda mun MÁS leggja áherslu á bæði andlega og líkamlega vellíðan nemenda og starfsfólks.