Keilir býður ekki upp á tölvuleikjabraut í haust – “Kerfið svifaseint”
Nám í tölvuleikjabraut hjá Keili á Ásbrú í Reykjanesbæ hefst ekki næstkomandi haust eins og stefnt hefur verið að, en Keilir stefndi á að bjóða upp á námið, meðal annars til að bregðast við óskum fyrirtækja um að eiga aðgang að vel menntuðu fólki til starfa innan greinarinnar.
Að sögn Arinbjörns Ólafssonar, markaðsstjóra Keilis reyndist ekki mögulegt að fá samþykki ráðuneytis fyrir náminu.
„Menntamálaráðuneytið hefur ekki verið jafn áhugasamt og atvinnulífið og væntanlegir nemendur voru,“ segir Arinbjörn Ólafsson, markaðsstjóri Keilis, við Morgunblaðið. „Atvinnulífið er í stöðugri framþróun og verður sífellt kvikara. Á meðan virðist kerfið enn vera svifaseint og lengi að bregðast við nýjum kröfum og þörfum atvinnulífsins.“
Undirbúningur námsbrautarinnar var meðal annars unnin í samvinnu við CCP og aðra tölvuleikjaframleiðendur á Íslandi, ásamt Samtökum leikjaframleiðenda og alþjóðlegum skólum í tölvuleikjagerð.