sudurnes.net
Keflvíkingar fresta þorrablóti - Local Sudurnes
Ákveðið hefur verið að fresta þorrablóti körfuknattleiksdeildar Keflavíkur um óákveðinn tíma vegna Covid 19. Þetta kemur fram á Facebook-síðu sem deildin heldur úti vegna blóðsins. Viðburðurinn hefur verið ein helsta tekjulind deildarinnar undanfarin ár. Tilkynningin í heild sinni: Kæru Keflvíkingar Það ætti varla að koma neinum á óvart en við verðum því miður að fresta Þorrablóti Keflavíkur um sinn. Stefnan er að halda viðburðinn eins fljótt og kostur gefst, þá með súrari mat eða einhverju allt öðru. Okkur þykir þetta að sjálfsögðu ömurlegt en ekkert annað er í stöðunni. Um leið og við förum að sjá þetta umtalaða ljós í enda ganganna þá heyrið þið í okkur aftur. Farið vel með ykkur og megi árið 2022 verða besta ár þessa áratugar hingað til. Kær kveðja,Þorrablótsnefndin. Mynd: Wikipedia Meira frá SuðurnesjumCourtyard hlýtur eftirsótt verðlaun annað árið í röðPólsk menningarhátíð í þriðja sinnPólsk menningarhátíð á laugardag – Hægt að kíkja í ,,heimsókn“ á pólskt heimiliYfir 30.000 gestir á Ljósanótt – Kanna hvernig til tókstÁramótatónleikar hljómsveitarinnar Valdimar í beinni á netinuMystery Boy á Stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu – Áhugaverðasta áhugaleiksýning ársinsMagnús Kjartansson hlaut SúlunaFarmers Soup opnar við Seltún í Krýsuvík – Hollar og góðar súpurMinja- og sögufélag Grindavíkur hlýtur Menningarverðlaunin 2017Njarðvíkingar verða “Trítaðir [...]