Keflavíkurstúlkur hefja leik í Domino’s deild á ný
Dominos-deild kvenna í körfuknattleik fer af stað á ný á laugardag, samkvæmt heimasíðu KKÍ, en þá eigast við Skallagrímur og Keflavík í Borgarnesi klukkan 16:15.
Ekki hefur verið leikið í deildinni síðan 3. október, þegar öllu mótahaldi KKÍ var frestað vegna aðgerða stjórnvalda í baráttunni við kórónuveiruna.
Keflavík á einnig næsta leik þar á eftir og þá gegn Snæfelli. Eftir það taka við landsleikir og hlé verður gert á deildinni á ný. Keflavík hefur leikið einn leik, sigurleik gegn KR.
Samkvæmt vef KKÍ hefst keppni í Domino’s deild karla þann 13. nóvember.