sudurnes.net
Keflavík borgar best - Local Sudurnes
Keflavík virðist borga leikmönnum sínum bestu launin af Suðurnesjaliðunum þremur í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, ef eitthvað er að marka greiningu á launum körfuknattleiksmanna, sem unnin var af ráðgjafanum Jose Colorado, sem sérhæfir sig í málefnum leikmanna sem vilja spreyta sig í atvinnumennsku. Úrtakið var þó lítið samkvæmt frétt á vefnum karfan.is, en einungis var rætt við 17 leikmenn í öllum deildum. Launin í efstu deild segir hann vera á bilinu 426 þúsund krónur á mánuði til 852 þúsund krónur á mánuði. Hann tekur einnig fram að ýmis fríðindi fylgi því að spila hér á landi, en meðal annars sjá liðin sumum leikmönnum fyrir húsnæði, sjá fyrir samgöngum og mat auk þess að greiða flugfargjöld. Í greiningunni kemur fram hvaða lið það eru sem leikmenn segi að borgi best, en í þeim flokki eru þrjú félög nefnd á nafn, Tindastóll, Keflavík og Valur. Meira frá SuðurnesjumTryggvi Guðmunds yfirgefur Njarðvík – Leikur 25. tímabilið í EyjumÁtjánhundruð vilja æfa og snæða með Ragnheiði SöruEinvígi Ragnheiðar Söru og Katrínar Tönju annað kvöld – Myndband!Hraustustu konur heims keppa – Ragnheiður Sara og Katrín Tanja mætast í marsGrunur kviknaði um hagræðingu úrslita í leik hjá GrindavíkBonneau mögulega áfram hjá Njarðvíkingum þrátt fyrir meiðsliSveindís Jane valin í [...]