Nýjast á Local Suðurnes

Karlmaður á sextugsaldri tekinn með kíló af hassi

Lögreglan á Suðurnesjum handtók fyrr í mánuðinum erlendan karlmann á sextugsaldri sem hafði reynt að smygla um einu kílói af hassi til landsins. Maðurinn var að koma með flugi frá Madrid og stöðvaði tollgæslan hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann gekkst þá strax við broti sínu, en hassið var í um það bil hundrað pakkningum sem hann hafði komið fyrir innvortis og svo innan klæða.

Maðurinn var vistaður í fangaklefa á lögreglustöð þar sem hann skilaði af sér pakkningunum sem hann hafði innvortis. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðan til að sæta tilkynningaskyldu til 22. nóvember.