sudurnes.net
Kanna þörf á byggingu varðveisluhúss - Local Sudurnes
Gerð hefur verið ítarleg þarfagreining fyrir varðveislu- og geymsluhúsnæði sem myndi nýtast Byggðasafni Reykjanesbæjar, Listasafni Reykjanesbæjar, Bókasafni Reykjanesbæjar, skjaladeild, menningarfulltrúa, Hljómahöll og umhverfis- og skipulagssviði. Þetta kom fram á fundi menningar- og atvinnuráðs sveitarfélagsins á dögunum. Þar kom fram að kröfur sem gerðar eru til varðveisluhúsa safna eru nokkuð sértækar en eru engu að síður nauðsynlegar til að tryggja viðunandi varðveisluaðstæður fyrir safnkost. Ný og betri aðstaða tryggir varðveislu menningararfsins og sögu sveitarfélagsins fyrir komandi kynslóðir. Menningar- og atvinnuráð þakkaði fyrir greinagóða þarfagreiningu og leggur áherslu á mikilvægi þess að koma þessum málum í góðan farveg. Meira frá SuðurnesjumMikil þörf á dagforeldrumOpna nýja ÓB stöð við Aðalgötu – “Þörfin aukist fyrir nýja stöð í Reykjanesbæ”Bláa lónið skilar gríðarlegum hagnaði – Ekkert pláss fyrir frumkvöðlana í sögunniBrunalykt og bilað mengunarmælitæki eftir gangsetningu kísilversMikilvægt að íbúar séu meðvitaðir um hvort vátryggingavernd þeirra sé í lagiÆfðu viðbrögð við eldsvoða í flugvél – Myndband!Suðurnesjamenn veðsetja eignir sínar mest allraKennarar fá vafasaman heiðurÁsmundur Friðriksson: Mun gera betur í framtíðinniKrefjast útboðs á tvöföldun Reykjanesbrautar fyrir áramót