Kanna afstöðu eigenda Sorpu til áframhaldandi sameiningarviðræðna við Kölku
Framkvæmdastjóra Sorpu hefur verið falið að óska eftir afstöðu eigenda fyrirtækisins til áframhaldandi viðræðna við Sorpeyðingarstöð Suðurnesja varðandi sameiningu Sorpu, sem sér um sorpeyðingu á höfuðborgarsvæðinu, og Kölku. Sameiningaráform fyrirtækjanna hafa undanfarið verið kynntar eigendum.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja er í eigu allra sveitarfélaganna á Suðurnesjum og hafa þau öll samþykkt áframhaldandi sameiningarviðræður.
Kalka hefur þegar náð hámarksafkastagetu og á í miklu samstarfi við Sorpu um brennslu á úrgangi. Það samstarf mun ekki breytast, segir í fundargerð Stjórnar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja.