sudurnes.net
Kaflaskil í endurskipulagningu fjármála Reykjanesbæjar - 3,6 millljarðar frá Lánasjóði sveitarfélaga - Local Sudurnes
Reykjanesbær hefur fengið lánsloforð frá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð um 3,6 milljarða króna sem gerir sveitarflélaginu kleift að endurfjármagna skuldir, þar með talið skuldir Reykjaneshafnar. Lánsloforðinu er sett það skilyrði að endurskipulagning fjárhags samstæðu Reykjanesbæjar leiði til þess að markmiðum aðlögunaráætlunar fyrir árin 2017-2022, sem bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti þann 18. apríl 2017, verði náð og að samkomulag liggi fyrir við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga um skilyrði varðandi frekari lántökur á tímabili aðlögunaráætlunarinnar. Í tilkynningu Reykjanesbæ segir að frá samþykkt framangreindrar aðlögunaráætlunar hafi fulltrúar Reykjanesbæjar lagt forsendur hennar til grundvallar viðræðum við kröfuhafa og þeirri niðurstöðu sem nú liggur fyrir. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti síðan á fundi sínum í dag eftirfarandi aðgerðir vegna endurskipulagningar efnahags Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar: Nánar um endurskipulaginu skulda Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. Eignarhaldsfélaginu Fasteign verður skipt upp í tvö félög, annars vegar félag sem heldur utan um eignir sem tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF1) og hins vegar félag sem heldur utan um eignir sem ekki tengjast grunnþjónustu sveitarfélagsins (EFF2). Skuldir félaganna verða endurfjármagnaðar og gerðir við þau nýir leigusamningar. Leigusamningurinn við EFF1 verður til 2038 en leigusamningurinn við EFF2 til 2024. Hafi Reykjanesbær ekki náð undir 150% lögbundið skuldaviðmið í árslok 2022 getur sveitarfélagið nýtt sér sölurétt á öllu hlutafé í [...]