sudurnes.net
Jörð skelfur enn við Grindavík - Local Sudurnes
Jarðskjálfti af stærð M3,7 mældist utan við Grindavík um klukkan 20 í gærkvöldi, sá bíður staðfestingar Veðurstofu, en tveir minni, M3,3 og M3,2 mældustá svipuðum slóðum um klukkan 17. Tilkynningar bárust um að þeir hafi fundist í byggð, m.a. á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður jarðskorpumælinga við Þorbjörn sýna að þensla sem veldur landrisi er hafin að nýju. Landrisið er nú hægara en það sem mældist í lok janúar en virðist eiga upptök á svipuðum slóðum. Líklegasta skýringin er að kvikusöfnun hafi tekið sig upp að nýju. Óvissustig vegna landriss er í gildi hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Meira frá SuðurnesjumJarðskjálfti upp á 4,2 fannst víðaMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLand rís á ný við ÞorbjörnEnn finna Grindvíkingar fyrir skjálftumSpá slæmu veðri við gosstöðvarnarMikil skjálftavirkni á ReykjanesiIsavia fær afhenta rafbíla – Liður í að minnka kolefnisspor starfseminnarNær allir kennarar Njarðvíkurskóla hafa sagt upp störfumGrindavík vann grannaslaginn – Keflavík tapaði í BorgarnesiFjórir fóru út af á Reykjanesbraut – Einn fluttur á slysadeild