sudurnes.net
Jón Ingi nýr innkaupastjóri Reykjanesbæjar - 24 sóttu um starfið - Local Sudurnes
Jón Ingi Benediktsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn í starf innkaupastjóra á fjármálasviði Reykjanesbæjar. Jón Ingi er með B.S. gráðu í viðskiptafræði á sviði vörustjórnunar frá Tækniskóla Íslands. Hann á að baki farsælan feril, en sl. 25 ár hefur hann m.a. gegnt starfi deildarstjóra reksturs og innkaupa hjá Ríkisútvarpinu og verið þar í forsvari fyrir innkaupastefnu og leitt fjölmörg krefjandi verk á sviði innkaupamála. Frá árinu 2014 hefur Jón Ingi starfað sem ráðgjafi hjá Hagvangi við að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að bæta innkaup þeirra. Alls 24 sóttu um starf innkaupastjóra. Auk Jóns Inga voru það eftirfarandi: Albert B. Hjálmarsson Arnar Már Elíasson Ágúst Fjalar Jónasson Bjarnhéðinn Guðlaugsson Einar Kristjánsson Elísabet María Þórhallsdóttir Grétar Erlingsson Grímur Steinn Karlsson Helga Helgadóttir Hólmgrímur Þorststeinsson Konráð Gylfason Kristinn Karel Jóhannsson Kristinn Leví Aðalbjörnsson Ólafur Guðjón Haraldsson Sigurður Már Eggertsson Sigurður Sigurðsson Sunna Dís Klemensdóttir Viðar EInarsson Þorgeir Ragnarsson Þórður Karlsson Þórey S. Þórisdóttir Þráinn Guðbjörnsson Þröstur Már Bjarnason Meira frá SuðurnesjumValur Orri og Thelma Dís best í körfunni hjá KeflavíkKristinn nýr mannauðsstjóri ReykjanesbæjarGunnar Axel ráðinn bæjarstjóriUnglingalandsliðin í körfu: Framtíðin er björt á SuðurnesjumHaraldur Axel ráðinn skólastjóri HeiðarskólaFramkvæmdir hafnar við fjölbýlishús Bláa lónsinsÞrír Suðurnesjaskólar í úrslitumSverrir Þór hættir og fjórir öflugir framlengja hjá KeflavíkVilja [...]