sudurnes.net
Jómfrúin opnar á KEF - Local Sudurnes
Veitingastaðurinn Jómfrúin hefur opnað á Keflavíkurflugvelli, er staður undir sama nafni hefur verið starfræktur í miðborg Reykjavíkur óslitið í 25 ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia, en þar segir að á Jómfrúnni sé hægt að setjast niður á huggulegan stað sem svipar til móðurstaðarins í Reykjavík og njóta veitinga. Jómfrúin býður farþegum upp á fjölbreyttan matseðil, blandaðan íslenskri og skandinavískri matargerð. Á matseðli er ekta danskt smurbrauð, úrval af bjór, snöpsum og fleira til. Eins og þörf er á flugvöllum verður líka hægt að fá fljótlegri kosti og grípa með sér tilbúið smubrauð á leið í flug. Meira frá SuðurnesjumFélagar í Leikfélagi Keflavíkur halda uppi stemningu í Ævintýragöngu fjölskyldunnarStarfsloka og starfsafmælisfögnuður hjá ReykjanesbæStyrktarspinning heppnaðist vel – Söfnuðu á annað hundrað þúsund krónumÞökkuð vel unnin áratuga störfNýtt göngu- og útivistarkort fyrir ReykjanesskagaJólamarkaður Kompunnar opnar í dag – Mikil aðsókn undanfarin árÍslensk hönnun á besta stað í FLE í mars – Hönnuðir hvattir til að sækja um þátttökuFrumhönnun nýs sundlaugarsvæðis kynnt – Sjáðu myndirnar!Leita eftir áhugasömum aðilum til að ganga og mynda gönguleiðir á ReykjanesiSbarro opnar á KEF