Jarðskjálftar finnast á Reykjanesi – Náið fylgst með framvindu mála
Nokkrar tilkynningar hafa borist um jarðskjálfta í kvöld. Stærstu skjálftarnir sem mælst hafa í kvöld í jarðskjálftahrinu sem nú stendur yfir skammt norðvestur af Geirfugladrangi við Reykjanes eru hátt í 4 stig. Þeir hafa fundist í Reykjanesbæ og einnig hefur Veðurstofan fengið tvær tilkynningar ofan af Akranesi. 100 skjálftar hafa mælst, segir á mbl.is.
Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir: „Í kvöld um kl. 21 hófst jarðskjálftahrina u.þ.b. fjóra kílómetra norðvestur af Geirfugladrangi á Reykjaneshrygg. Hátt í 100 skjálftar hafa mælst nú þegar, stærstu um fjögur stig. Tilkynningar hafa borist frá Reykjanesbæ og Akranesi um að skjálftar hafi fundist þar. Hrinan er enn í gangi, en heldur hefur dregið úr henni þegar þetta er skrifað [klukkan 22:37]. Skjálftahrinur eru ekki óalgengar á þessum slóðum. Náið verður fylgst með framvindu mála.“
Viðbrögð við jarðskjálfta:
Við jarðskjálfta getur verið hættulegt að hlaupa út úr byggingu. Reyndu frekar að leita skjóls og vera kyrr á öruggum stað innandyra t.d. út í horni við burðarveggi fjarri gluggum. Ef þú er sofandi og vaknar upp við jarðskjálfta, haltu þá kyrru fyrir og notaðu kodda til að verja höfuðið.
Ef þú ert utandyra eða í bifreið og það verður jarðskjálfti, hafðu þá eftirfarandi í huga: Farið út á opið svæði, forðist byggingar og raflínumöstur. Farið lengra frá mannvirkjum en nemur hæð þeirra. Ef fólk er akandi þá stöðvið bifreiðina eins fljótt og unnt er, fjarri byggingum, vegbrúm eða háspennulínum og haldið ykkur í bifreiðinni, með beltin spennt, þar til skjálftanum lýkur. Haldið þá varlega áfram og gætið að, því brýr og vegir geta skemmst í stórum skjálftum. Varhugavert er að keyra nema í neyð. Fylgist með fréttum í útvarpi.