Nýjast á Local Suðurnes

Jarðhæð FLE rýmd vegna grunsamlegs pakka – Sprengjusveit að störfum

Unnið er að því að rýma Flugstöð Leifs Eiríkssonar, en grunsamlegur pakki fannst í innritunarsal stöðvarinnar. Samkvæmt heimildum Suðurnes.net vinnur sprengjusveit að því að kanna pakkann.

Í augnablikinu hefur rýmingaráætlun einungis verið sett í gang á jarðhæð flugstöðvarinnar.

 

Uppfært kl. 11:35 –  Lög­regluaðgerðum í flugstöðinni er lokið, en sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá lög­regl­unni á Suður­nesj­um var um að ræða pakka sem skil­inn hafði verið eft­ir og var venjubundið ferli sett í gang og reynd­ist eng­in hætta á ferð.