sudurnes.net
Ítalir mæta í loftrýmisgæslu - Local Sudurnes
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar ítalska flughersins. Þetta er í sjötta sinn sem Ítalir leggja Atlantshafsbandalaginu til flugsveit vegna verkefnisins en flugsveit Ítala var seinast hér á landi fyrir tveimur árum. Flugsveitin annast loftrýmisgæsluna ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, (NATO Control and Reporting Center-Keflavik). Ítalska flugsveitin kemur til landsins á morgun, mánudaginn 25. apríl, með fjórar F-35 orrustuþotur og 135 liðsmenn. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu frá 26. apríl til 6. maí nk. Framkvæmd verkefnisins er með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland. Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þar dvelja einnig flugsveitir bandaríska sjóhersins við kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia. Loftrýmisgæslunni lýkur í lok júní. Mynd: Ítalski flugherinn Meira frá SuðurnesjumSex orrustuþotur og 180 hermenn sinna loftrýmisgæslu frá KeflavíkurflugvelliKanadíski flugherinn sér um loftrýmisgæslu næsta mánuðinnUm 135 ítalskir hermenn mættir í loftrýmisgæslu – Sjáðu myndirnar!Rannsóknarstofnun á sviði öryggismála vill að varnarstöð verði opnuð á KeflavíkurflugvelliFlugherinn kannar möguleika á byggingu vöruhúsaFjórar orrustuþotur sinna loftrýmisgæsluMilljarða verkefni vegna komu bandaríska [...]