Nýjast á Local Suðurnes

Íslenskur karlmaður á sextugsaldri tekinn með amfetamínvökva

Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur til rannsóknar fíkniefnamál sem upp kom fyrr í mánuðinum þegar íslenskur karlmaður á sextugsaldri reyndi að smygla rúmlega einum og hálfum lítra af amfetamínvökva inn í landið.

Maðurinn var að koma frá Barcelona á Spáni  þegar tollverðir stöðvuðu hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í farangri hans voru tvær 780 millilítra rauðvínsflöskur sem reyndust innihalda amfetamínvökvann.

Maðurinn sætir nú gæsluvarðhaldi og miðar rannsókn málsins vel.