Nýjast á Local Suðurnes

Íslensk hönnun á besta stað í FLE í mars – Hönnuðir hvattir til að sækja um þátttöku

Íslensk hönnun verður sett í öndvegi á Keflavíkurflugvelli í tilefni Hönnunar-Mars en Isavia og Hönnunarmiðstöð Íslands bjóða upprennandi hönnuðum að selja hönnun sína á besta stað á verslunarsvæðinu 4.-22. mars.

Okkur finnst að frábærar hugmyndir eigi að fá byr undir báða vængi og að þeir sem fara um flugstöðina á leið sinni til annarra landa geti gripið með sér íslenska hágæðahönnun og borið hróður listamannanna út fyrir landsteinana. Segir á vefsíðu verkefnisins

Hönnunarmiðstöð Íslands fer yfir umsóknir og tekur ákvörðun um valið. Tilkynnt verður um niðurstöður 1. mars næstkomandi. Við valið verður lögð áhersla á fjölbreytt vöruúrval og að gefa ferðamönnum tækifæri til að kynna sér gróskuna í íslenskri hönnun.

Isavia hvetur hönnuði til að bregðast skjótt við þessu kalli og sækja um þátttöku í CREATIVE TAKE OFF fyrir 1.mars.