sudurnes.net
Isavia semur við HS Orku um hleðslustöðvar - Local Sudurnes
Fulltrúar Isavia og HS Orku hafa skrifað undir samning um uppsetningu á fjölda hleðslustöðva fyrir rafbíla á Keflavíkurflugvelli. Um langtíma verkefni er að ræða. Nýjar hleðslustöðvar verða fyrir farartæki Isavia og annarrar rekstraraðila á vellinum og einnig fyrir starfsfólk fyrirtækjanna en auk þess verða eldri hleðslustöðvar uppfærðar eða þeim skipt út. Nýju stöðvarnar verða allt að 100 AC hleðslustöðvar og allt að 10 DC hraðhleðslustöðvar. Samkvæmt samningnum sér HS Orka um uppsetningu og viðhald hleðslustöðvanna sem Isavia leigir af félaginu. Þá heldur HS Orka einnig utan um notkun hleðslustöðvanna og hvernig hún skiptist milli aðila. Samningurinn er gerður á grundvelli verðfyrirspurnar sem gerð var á útboðsvef Isavia í byrjun þessa árs. „Við hjá Isavia erum afar ánægð að hafa náð þessu samkomulagi við HS Orku,“ segir Gunnar Ingi Hafsteinsson, deildarstjóri bílastæðaþjónustu hjá Isavia. „Um langtímaframkvæmd er að ræða og þegar henni er lokið verðum við komin með nýjar hleðslustöðvar fyrir farartæki starfsfólks og fyrirtækja á flugvallarsvæðinu. Þetta hjálpar okkur að ná markmiði okkar um kolefnaleysi í eigin rekstri á Keflavíkurflugvelli fyrir árið 2030. Gunnar Ingi segir að fyrsta verkefnið samkvæmt samningnum verði að uppfæra hraðhleðslustöðvar sem fyrir séu fyrir farþega á P2 skammtímastæðum flugvallarins komu megin. Því næst verði skipt [...]