sudurnes.net
Isavia hættir notkun á einnota drykkjar- og matarílátum - Local Sudurnes
Isavia stefnir á að lágmarka notkun plastumbúða í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hætta innkaupum á einnota drykkjar- og matarílátum. Þá stefnir fyrirtækið á að hlutfall flokkaðs úrgangs verði 40% í lok þessa árs, 55% árið 2025 og 70% árið 2030. Aðgerðir fyrirtækisins í umhverfismálum miða þannig að því að dregið verður úr magni umbúða utan um vörur, tæki og búnað sem kemur inn í flugstöð og á flugvallarsvæði. Innkaupum á einnota drykkjar- og matarílátum verði hætt og innkaupum á áhöldum úr plasti einnig. Notkun á plastumbúðum verði lágmörkuð og áhersla lögð á aðgerðir gegn matarsóun. Meira frá SuðurnesjumTvöfalt fleiri strikuðu yfir nafn ÁsmundarValdís hagnaðist um tæpar 40 milljónir krónaMeirihlutinn: Áframhaldandi strangt aðhald í rekstri ReykjanesbæjarBjóða Reykjavíkurstrætó út til eins ársLoftur vann LionsbílinnÍstak fær milljarða flugvallaverkefniNý heilsugæslustöð verður byggð í Innri NjarðvíkVegagerðin tekur yfir ábyrgð á almenningssamgöngumStöðvaður á leið til Grænlands með 700 grömm af hassiISS bauð lægst í ræstingar fyrir Reykjanesbæ