sudurnes.net
Innheimta vegtolla gæti hafist árið 2023 - Local Sudurnes
Frumvarp sem heimilar gjaldtöku og stofnun félaga um vegaframkvæmdir verður lagt fyrir þingið í haust og innheimta vegtolla gæti hafist árið 2023. Þetta kom fram í viðtali við Sigurð Inga Jóhannsson samgönguráðherra í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Sagði ráðherra meðal annars að fyrirhugað væri að flýta mörgum verkefnum á samgönguáætlun. Lagt hafi verið til að á næstu sjö árum verði hægt að fjármagna aðskilnað umferðar úr gagnstæðum áttum frá höfuðborginni suður að Keflavíkurflugvelli, austur á Selfoss og að Borgarnesi. Samanlagt séu þetta um 40 milljarðar króna sem fjármagnaðir verði úr ríkissjóði. Eitt verkefni, ný brú yfir Ölfusá, verði líklega fjármagnað í samvinnu ríkis og einkaaðila. Þáttarstjórnendur spurðu um væntanlega gjaldtöku? Ráðherra svaraði að ákveðið hefði verið að hugsa út fyrir boxið varðandi verkefnin, m.a. á stofnbrautunum, og setja á notendagjöld í þeim tilgangi að þurfa ekki að bíða í 15 ár eftir framkvæmdum. Þá var Sigurður spurður um það hvenær mætti búast við því að komin væru gjaldtökuhlið við þessa vegi? Ráðherra svaraði það væri mismunandi eftir framkvæmdahraða en að frumvarp sem heimili gjaldtöku og stofnun félaga um framkvæmdirnar verði lagt fyrir þingið í haust. Sigurður Ingi sagðist vonast til að framkvæmdir gætu hafist á árunum 2020 til 2021. [...]