Innbrotsþjófar handteknir á hlaupum
Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo innbrotsþjófa á hlaupum í nótt en mennirnir höfðu reynt að brjótast inn í mannlausa íbúð í fjölbýlishúsi í Reykjanesbæ. Árvökull íbúi í húsinu varð mannanna var og lét lögreglu vita sem náði þeim á flótta. Þeir gista nú fangageymslur lögreglunnar. Frá þessu er greint á vef Morgunblaðsins.
Að öðru leyti var nóttin fremur róleg á Suðurnesjum en mikil hálka er víða og ökumenn beðnir um að aka varlega.