Ingþór leiðir hjá E-lista: “Reiðubúinn að vinna vel fyrir Sveitarfélagið Voga”
Ingþór Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar Sveitarfélagsins Voga leiðir E-lista, sem býður fram í komandi sveitarstjórnarkosningum. E-listinn hefur verið með hreinann meirihluta í sveitarfélaginu frá árinu 2014, en Sjálfstæðisflokkurinn er hefur tvo fulltrúa og L-listinn flokkur fólksins er með einn.
„Ég er mjög ánægður með þennan samhenta hóp sem er reiðubúinn að vinna vel fyrir Sveitarfélagið Voga. Það hefur náðst frábær árangur á kjörtímabilinu og það er mikilvægt að halda áfram uppbyggingarstarfinu í bæjarfélaginu. Við viljum halda því góða starfi áfram til heilla fyrir alla okkar íbúa ” er haft eftir Ingþóri í tilkynningu.
Á listanum má finna góða blöndu af reynslumiklu fólki úr bæjarmálunum og nýjum frambjóðendum, segir einnig í tilkynningunni, en eftirfarandi aðilar skipa listann:
1. Ingþór Guðmundsson Forseti bæjarstjórnar / stöðvarstjóri
2. Bergur B. Álfþórsson Formaður bæjarráðs / leiðsögumaður
3. Áshildur Linnet Vara bæjarfulltrúi / verkefnastjóri
4. Birgir Örn Ólafsson Bæjarfulltrúi / deildarstjóri
5. Inga Rut Hlöðversdóttir Bæjarfulltrúi / gull- og silfursmíðameistari
6. Friðrik V Árnason Bygginga og orkufræðingur
7. Guðrún K. Ragnarsdóttir Líffræðingur
8. Baldvin Hróar Jónsson Markaðsstjóri
9. Elísabet Á Eyþórsdóttir Nemi
10. Ingvi Ágústsson Tölvunarfræðingur
11. Tinna Huld Karlsdóttir Hjúkrunarfræðingur
12. Sindri Jens Freysson Tæknimaður
13. Brynhildur S Hafsteinsdóttir Húsmóðir
14. Þorvaldur Örn Árnason Kennari / Líffræðingur