Nýjast á Local Suðurnes

Íkveikjur og skemmdarverk á Suðurnesjum um páskana

Nokkuð hefur borið á skemmdarverkum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Tvær bifreiðir, sem stóðu inni í porti í Keflavík, voru skemmdar, önnur þeirra mikið. Í báðum bifreiðunum fundust steinhnullungar sem höfðu að líkindum verið notaðir til að brjóta rúður í þeim.

Þá var brotist inn í listasmiðju á Ásbrú og málningarfötum kastað af millilofti niður á gólf. Einnig hafði verið tæmt úr slökkvitæki á gólfið. Þá hafði verið kveikt í blaðahrúgu á gólfi. Daginn eftir var brotist inn í húsnæðið við hliðina og þar kveikt í ruslahrúgu á gólfi. Var eldurinn slokknaður í báðum tilvikum þegar tilkynnendur komu á vettvang.

Lögreglan rannsakar málin.