Íbúðagötu lokað í Grindavík – Sérsveitin enn að störfum
Vopnum búin Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út í Grindavík á níunda tímanum í kvöld.
Samkvæmt heimildum Suðurnes.net er útkallið til komið vegna manns í annarlegu ástandi og vinna Lögregla og Sérsveit ríkislögreglustjóra að að því að loka að minnsta kosti einni íbúðargötu í Grindavík. Einnig er unnið að því að koma upplýsingum um málið til íbúa.
Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.